12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 40 vörur
Page

Hita, hefti og límbyssur

Hér að ofan finnurðu gott úrval af hita-, hefti- og límbyssum frá gæða framleiðendum á borð við Ryobi, Stanley og Black & Decker. Þessi verkfæri nýtast bæði áhugafólki og fagfólki í hin ýmsu verkefni og gera vinnuna viðráðanlegri og skilvirkari. Skoðaðu úrvalið og finndu rétta verkfærið fyrir þig og þín verkefni.

Vantar þig önnur verkfæri en þessi hér að ofan? Þú finnur öll möguleg verkfæri og aukahluti hér í netverslun BAUHAUS eða í verslun okkar á Lambhagavegi 2-4.

Hagnýtar hitabyssur

Hitabyssur eru hagnýt og fjölhæf verkfæri sem gagnast í ýmiss verkefni. Hitabyssur gefa frá sér straum af heitu lofti sem er hægt að stilla eftir því hvaða verkefni er fyrir hendi. Hitabyssur eru meðal annars notaðar í að fjarlægja lakk og gamla málningu ásamt límefni og vínyl. Einnig er hægt að nota hitabyssur til þess að losa skrúfur og bolta og þíða frosnar lagnir. Þegar þú velur þér hitabyssu skaltu skoða mögulegar hita- og loftflæðisstillingar og aukastúta eða önnur viðhengi sem kunna að fylgja henni.

Kröftugar heftibyssur

Heftibyssur eru notaðar til þess að festa alls kyns efni saman þegar naglar, skrúfur og límefni henta ekki eða duga ekki til, til dæmis við bólstrun á húsgögnum eða til þess að festa áklæði á veggi og önnur yfirborð. Handvirkar heftibyssur eru ódýrar, fyrirferðalitlar og einfaldar í notkun, en krefjast meiri áreynslu frá notandanum samanborið við rafknúnar heftibyssur. Rafknúnar heftibyssur eru betri kostur ef þú þarft að hefta í þéttara efni eða í þröngu rými þar sem þú getur ekki beitt handafli nægilega vel.

Fjölhæfar límbyssur

Límbyssur eru gagnleg tól fyrir bæði áhugafólk og fagfólk þar sem þær veita skjóta og áreiðanlega aðferð til að festa saman ýmiss efni. Rétta límbyssan getur gert gæfumuninn á milli þreytandi og auðvelds verkefnis. Límbyssur eru tilvaldar í ýmiss konar handverk, viðgerðir innan heimilisins og léttan iðnað. Þær virka þannig að þær hita upp límstifti svo það verði fljótandi og auðvelt sé að dreifa því hratt og örugglega. Límið þornar svo og bindur efnið sem þú settir límið á saman. Þú finnur að sjálfsögðu límið í límbyssuna þína í BAUHAUS.

FAQ:

Í hvað get ég notað límbyssu?

  • Límbyssur má nota í hvaða verkefni sem er þar sem festa þarf efni eða hluti saman. Límbyssur henta í ýmiss konar föndur og framkvæmdir, sama hvort það sé einfalt handverk eða framkvæmdir innan heimilsins eða utan þess.

Í hvað get ég notað heftibyssu?

  • Heftibyssur eru notaðar til þess að festa alls kyns efni saman þegar naglar, skrúfur og límefni henta ekki eða duga ekki til, til dæmis við bólstrun á húsgögnum eða til þess að festa áklæði á veggi og önnur yfirborð.

Hita, hefti og límbyssur

Sýna 40 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form