12 mánaða skilaréttur.
Síur 1
Sýna 17 vörur
  1. Borvél kolalaus 18V XR 2x 5Ah DeWALT
    DEWALT
    Borvél kolalaus 18V XR 2x 5Ah DeWALT
    79.995 kr.
  2. Súluborvél 710W Scheppach DP55
    SCHEPPACH
    Súluborvél 710W Scheppach DP55
    30.895 kr.
  3. Skrúfvél 20V 2Ah Scheppach C-DTB74
    Tilboð
    SCHEPPACH
    Skrúfvél 20V 2Ah Scheppach C-DTB74
    9.995 kr.
    Tilboð gildir til 9 apríl
    Þú sparar: 8.000 kr. Almennt verð: 17.995 kr.
  4. Image
    RYOBI
    Borvél 18V 2x 2.0Ah Ryobi R18DD3‐220S
    44.995 kr.
  5. Höggborvél 18V SDS+ Ryobi One+ R18SDS-0
    RYOBI
    Höggborvél 18V SDS+ Ryobi One+ R18SDS-0
    32.895 kr.
  6. Höggborvél 18V 2x2Ah DeWALT DCD776D2T-QW
    DEWALT
    Höggborvél 18V 2x2Ah DeWALT DCD776D2T-QW
    34.995 kr.
  7. Image
    RYOBI
    Höggborvél 18V SDS+ Ryobi One+HP RSDS18X-0
    49.995 kr.
  8. Borvél 18V 4ah rafhlaða DCD100
    Vara hættir
    DEWALT
    Borvél 18V 4ah rafhlaða DCD100
    41.995 kr.
  9. Sett Borvél Stingsög  18V Ryobi One+ R18DDJS‐220S
    RYOBI
    Sett Borvél Stingsög 18V Ryobi One+ R18DDJS‐220S
    84.995 kr.
  10. Black & Decker
    Höggborvél SDS+ 18V Black & Decker
    18.495 kr.
  11. BOSCH PROFESSIONAL
    Borvél 12V Bosch GSR
    23.995 kr.
  12. RYOBI
    Borvél 18V 4ah og 2ah rafhlaða Ryobi one+ RPD18-2C42S
    35.995 kr.
  13. STANLEY
    Höggborvél 1100W Stanley FatMax
    22.995 kr.
  14. METABO
    Höggborvél 880W SDS+ Metabo KHE 2860 m. auka Patrónu
    40.895 kr.
  15. BOSCH PROFESSIONAL
    Höggborvél 600W Bosch GSB 13 ER
    23.995 kr.
  16. Vara hættir
    RYOBI
    BORVÉL Kolalaus 18V Ryobi One+ HP RDD18X-220S
    57.995 kr.
  17. Vara hættir
    Bosch
    Höggborvél 18V sett 2x1,5Ah Bosch PSB 1800
    38.195 kr.

Borvélar

Borvélar gagnast í ýmis verkefni, bæði stór og smá, og eru ómissandi í alla verkfærakassa. Hvort sem þú þarft að hengja upp hillu heima hjá þér eða ert atvinnu-húsgagnasmiður, þá verður allt auðveldara með réttu borvélinni. Þú finnur borvélar í ýmsum stærðum og gerðum og ættir því að geta fundið þá réttu fyrir þig.

Úrvalið okkar samanstendur meðal annars af þráðlausum borvélum, bor- og skrúfvélum og höggborvélum, bæði þráðlausum og ekki. Við erum með borvélar frá þekktum og traustum framleiðendum eins og DeWalt, Bosch og Ryobi, sem allir eru þekktir fyrir gæðavörur. Borvélin er því ekki aðeins hentugt verkfæri í ýmis verkefni, heldur einnig góð fjárfesting sem endist lengi.

Vantar þig önnur verkfæri en borvél? Við eigum gott úrval af verkfærum af öllum stærðum og gerðum.

Hvernig borvél þarf ég?

Það eru til margar gerðir af borvélum sem henta í mismunandi verkefni. Til þess að auðvelda valið er gott að byrja á að skipta vélunum í tvo flokka:

  • Venjulegar borvélar eru handstýrðar og í dag ganga þær langflestar fyrir rafhlöðum og eru því snúrulausar. Venjulegar borvélar eru fjölhæf verkfæri sem nýtast í hin ýmsu verk. Þessar borvélar virka flestar líka sem skrúfvélar, en það veltur á eiginleikum bitafestingarinnar (patróna). Ef þú ert bara að leita þér að skrúfvél í minni verkefni, t.d. að setja saman húsgögn, þá finnurðu einnig rétta tækið í verkið hjá okkur í BAUHAUS.
  • Höggborvélar virka á svipaðan hátt og venjulegar borvélar, nema auk þess að snúa bornum þá hamra þær honum líka. Höggborvélar eru því kröftugri og henta í meira krefjandi verkefni. Þar sem höggborvélar snúast bæði og hamra eru þær mun betri í að komast í gegnum harðgerðari efni eins og steypu, flísar og stál. Höggborvélar ganga flestar fyrir rafhlöðum, en ekki allar, svo gott er að hafa í huga hvora gerðina þú vilt áður en þú festir kaup á tækinu.

Ef þú sérð ekki fyrir þér að þurfa að nota borvél í stór og krefjandi verkefni dugir venjuleg og létt borvél. Léttari borvélar eru þægilegar í bæði notkun og geymslu. Ef þú átt stærri verkefni fram undan, eins og að rífa upp steypta blómabeðið í garðinum eða leggja nýja innkeyrslu, þá mun höggborvél gagnast þér betur. Höggeiginleikinn í vélunum er ekki sjálfvirkur heldur þarf að kveikja á honum, og því er einnig hægt að nota höggborvélar sem venjulegar borvélar.

Hvernig vel ég rétta borvél?

Þegar þú hefur valið á milli venjulegrar borvélar og höggborvélar þarftu að fara yfir í næstu ákvarðanatöku; hvaða borvél á ég að velja? Við valið á réttu vélinni þarftu aftur að hafa í huga hvers konar verkefni þú munt nota borvélina í og hvaða eiginleikar skipta þig máli. Nokkrir eiginlegar sem er gott að hafa í huga eru:

  • Rafhlaða
  • Vélar tog
  • Þyngd vélarinnar

Minni og léttari vélar henta vel fyrir minni verkefni innan heimilisins. Rafhlaðan í þeim endist oft skemur en í stærri vélum, en ef vélin er lítið notuð í lengri verkefni er það lítið vandamál. Ef þú þarft borvél í stærri og meira krefjandi verkefni er betra að velja vél með betri rafhlöðu og hærra snúningsvægi. Borvélin er þá kraftmeiri og hentugri í erfiðari verkefni.

Fylgihlutir og fleira

Með sumum borvélum fylgir hvorki rafhlaðan ekki né hleðslutækið og þá þarf að kaupa það sér. Gættu þess að rafhlaðan passi við spennu (V) skrúfvélarinnar. Mörg þeirra vörumerkja sem seld eru í BAUHAUS eru með sínar eigin rafhlöður sem passa í öll tækin í þeirra vörulínu. Þetta á ekki við um öll vörumerki, svo vertu vakandi fyrir því í vöruvalinu. Borarnir sjálfir fást bæði stakir og í settum. Ef þú átt enga bora er betra að kaupa sett með góðu úrvali. Ef þú átt nú þegar margar gerðir bora geturðu keypt staka, hvort sem þig vantar trébor, steinbor, spaðabor eða venjulegan bor. Við eigum einnig sett sem innihalda bæði bora og skrúfbita, ef þú notar borvélina sem skrúfvél líka.

Einfalt og þægilegt hjá BAUHAUS

Þú getur auðveldlega fundið réttu borvélina fyrir þig í BAUHAUS ásamt öllum nauðsynlegum aukahlutum. Skoðaðu úrvalið í netversluninni, pantaðu vörurnar og sæktu þær í verslunina. Einnig ertu alltaf velkomin/nn í verslunina til okkar þar sem við hjálpum þér að finna réttu vörurnar fyrir þig.

FAQ:

Í hvað nota ég borvél?

  • Þú getur notað borvél í hin ýmsu verkefni innan og utan heimilisins. Til dæmis er gott að eiga borvél þegar það þarf að setja sama húsgögn eða ef þú ætlar að setja upp myndir. Borvélar eru einnig ómissandi í stærri verkefni eins og húsgagnasmíð og viðgerðir.

Hver er munurinn á borvél og höggborvél?

  • Venjulegar borvélar eru fjölhæf verkfæri og flestar þeirra virka líka sem skrúfvélar. Langflestar borvélar ganga fyrir rafhlöðum og eru því snúrulausar. Höggborvélar hamra bornum auk þess að snúa honum. Þær eru því kröftugri og henta í meira krefjandi verkefni, sérstaklega þar sem þú þarf að komast í gegnum harðgerðari efni eins og steypu, flísar og stál.

Borvélar

Sýna 17 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form
 

Vöruupplýsingablað

Upplýsingaskjalið mun opnast í nýjum flipa. Viltu halda áfram?