12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 181 vörur
Page

Sagarblöð

Það eru til margar gerðir af sögum sem henta í mismunandi verkefni. Í BAUHAUS finnur þú breitt úrval af alls kyns sögum, allt frá hjólsögum til borðsaga og sverðsaga. Sagirnar okkar koma frá traustum gæða framleiðendum á borð við Stanley, svo þú veist að þú ert að fá góða vöru.

Hér að ofan finnur þú úrvalið okkar af mismunandi sagarblöðum. Ertu að leita þér að söginni sjálfri? Hér getur þú skoðað úrvalið af handsögum, og ef þú ert að leitast eftir rafknúnum sögum þá eigum við þær einnig til.

Í hvað get ég notað sagarblöð?

Sögin er eitt fjölhæfasta verkfærið í verkfærakassanum. Sagir eru nær eingöngu notaðar til þess að skera niður ýmiss konar efni, allt frá við til málms til plasts. Sagir koma í fjölbreyttu úrvali af lögunum og stærðum eftir því hvers konar verkefni þeim er ætlað að tækla. Ef þú þekkir muninn á mismunandi sögum og hlutverkum þeirra þá verður vinnan þín, sama hvort hún sé heima við eða í umfangsmeiri iðnaði, mun auðveldari og skilvirkari. Þú getur keypt mörg sagarblöð í pakka eða stök blöð. Ef þú ert í vafa um hvers konar sagarblöð þú ættir að kaupa, ekki hika við að heyra í starfsfólki BAUHAUS.

Mismunandi gerðir af sögum og sagarblöðum

Þótt grunnhlutverk saga sé það sama - beittar tennur sem eru hannaðar til þess að rífa í sundur efnivið - þá koma þær í mismunandi stærðum og gerðum. Hér að neðan förum við yfir nokkrar mismunandi gerðir af sögum:

  • Handsög: Þetta er klassíska sögin sem er eflaust það fyrsta sem fólki dettur í hug. Með viðar- eða plasthandfangi og löngu og breiðu blaði, eru handsagir fullkomnar í einfalda trésmíði.
  • Hjólsög: Kröftugt verkfæri með hringlaga blaði sem snýst til þess að skera í sundur efnivið. Hentar vel til þess að ná beinum skurði.
  • Borðsög: Stórt rafmagnsverkfæri með hringlaga blaði. Borðsög stendur yfir bili í borði sem blaðið getur farið í gegnum þegar sögin sker í gegnum stóra búta af efnivið.
  • Stingsög: Rafmagnsverkfæri með mjóu og löngu blaði sem færist upp og niður. Hentar vel í nákvæmnisvinnu með við, plast og jafnvel málm.

FAQ:

Hvað geta sagarblöð sagað í gegnum?

  • Það fer eftir stærð, efni og lögun sagarblaðsins hvað það getur sagað í gengum. Sum sagarblöð geta sagað í gegnum alls konar efnivið, bæði við, málm og plast, svo eitthvað sé nefnt.

Hvernig sagarblöð ætti ég að kaupa?

  • Þau sagarblöð sem þú ættir að kaupa fara alfarið eftir söginni sem þú átt. Flest sagarblöð geturðu keypt annað hvort mörg í pakka eða stök. Ef þú ert í vafa um hvers konar sagarblöð þú ættir að kaupa, ekki hika við að heyra í starfsfólki BAUHAUS.

Sagarblöð

Sýna 181 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form