-
GLOBOLoftljós LED Sajama 30W Ø54cm20.995 kr.
-
EGLOLoftljós LED Nieves 1 Ø31cm7.495 kr.
-
LEDVANCELoftljós LED 4000K Office Line 25W 60 cm19.995 kr.
-
ANETA LIGHTINGLoftljós E27 Vanja hvítt&stál15.795 kr.
-
LEDVANCELoftljós LED 4000K Office Line 48W 120 cm24.995 kr.
-
GLOBOLoftljós með fjarstýringu LED Ø49,5cm31.095 kr.
-
MARKSLÖJDKastarar 2xGU10 Expand Spot 72 cm13.195 kr.
-
GLOBOLoftljós Joyce 18W Globo24.195 kr.
-
Ritter LeuchtenLampi LED 10W Ritter 60 cm2.695 kr.
-
NORDLUXLoftljós E27 Alton reykt gler Ø27,5 cm14.995 kr.
-
NORDLUXKastarar GU10 Frida hvítir 29 cm8.995 kr.
-
EGLOLoftkastari LED Barnham 3x3,3W Eglo kopar/svart19.995 kr.
-
MARKSLÖJDLoftljós 3xE27 Mazzo svart7.995 kr.
-
LEDVANCELampi LED 48W Submarine Ledvance 148cm 4000K17.995 kr.
-
LEDVANCELampi LED 24W Submarine Slim 153 cm9.995 kr.
-
MARKSLÖJDLoftljós E14 Strömsholm antík Ø36 cm49.395 kr.
-
NORDLUXLoftljós LED Fallon hvítt Ø10xH6 cm7.995 kr.
-
EGLOLoftljós LED Plafond Ø33 cm Eglo hvítt8.495 kr.
-
MARKSLÖJDKastarar 3xGU10 Hyssna Ø2512.595 kr.
-
NORDLUXEldhúsljós LED Latona hvítt 11W 56,2 cm5.295 kr.
-
EGLOHangandi ljós E27 dimmanlegt Townshend 1000x1100 mm29.995 kr.
-
LEDVANCELampi LED 18W Submarine Ledvance 59cm 4000K8.995 kr.
-
MARKSLÖJDLoftljós LED Luna Ø22 cm Markslöjd svart16.295 kr.
-
EGLOLoftljós E27 C 35 cm15.000 kr.
-
EGLOLED-innbyggður kastari Sartiano frá Eglo, þv.9 cm, hallandi,5.995 kr.
-
EGLOKastarar GU10-LED Buzz LED 48,5 cm8.995 kr.
-
NORDLUXKastari GU10 Link Explore hvítur Ø5,5 cm4.995 kr.
-
MARKSLÖJDKastarar 2xGU10 Expand Spot 72 cm13.195 kr.
-
LEDVANCELampi LED 18W Submarine Slim 125 cm6.995 kr.
-
NORDLUXKastari GU10 Link Munin hvítur Ø6,1 cm4.995 kr.
-
EGLOLoftljós LED ZIGBEE Fueva-Z Ø28.5cm9.995 kr.Tilboð gildir til 9 aprílÞú sparar: 2.000 kr. Almennt verð: 11.995 kr.
-
PHILIPS HUELoftljós LED RGB 33,5W Ø38,1 cm Xamento Hue42.995 kr.
-
NORDLUXKastarar GU10 Frida hvítir 23x23 cm17.995 kr.
-
EGLOLED-loftljós Bimeda, GU10 frá Eglo, m/3 kösturum, hvítt14.995 kr.
-
NORDLUXHangandi perustæði E27 Avra svart 2 m3.995 kr.
Loftljós
Birtan inni á heimilinu getur skipt sköpum þegar það kemur að því að skapa stemmingu og hlúa að almennri vellíðan heimilisfólksins. Hærra og kaldara birtustig hjálpar okkur að vakna og koma okkur af stað á morgnanna á meðan hlýrra og lægra birtustig skapar þægilega og róandi stemmingu á kvöldin. Öll herbergi þurfa einhvers konar ljós og loftljós eru oft þægilegasti valkosturinn.
En ákvarðanatakan endar ekki þar - þú þarft líka að velja hvers konar loftljós þú vilt. Til dæmis er algengt að hafa hangandi loftljós fyrir ofan borðstofuborðið, eitthvað stærra og flottara sem sker sig úr. Inni á baðherbergjum velur fólk oft klassískan kúpul sem hentar umhverfinu vel og gefur rýminu hressandi birtu. Í svefnherbergjum getur verið gott að hafa stærri og dekkri skerma, svo auðveldara sé að dimma ljósin fyrir þægilegri birtu á kvöldin.
Lýsing heimilisins er mikilvægur hluti þess, sama hvort um sé að ræða inniljós eða útiljós, veggljós, stofuljós eða innfelld ljós. Í BAUHAUS finnurðu rétta ljósið fyrir öll rými heimilisins .
Mismunandi gerðir loftljósa
Til eru margar mismunandi gerðir loftljósa en aðal flokkarnir eru þó hangandi, innfelld, yfirborðslöguð og kastarar.
Hangandi loftljós
Hangandi loftljós, eins og nafnið gefur til kynna, hanga úr loftinu. Oftast er skermur utan um ljósaperuna á endanum, en þó eru til hangandi loftljós þar sem ljósaperurnar eru berar. Hangandi loftljós koma í ýmsum stærðum og gerðum og því eru margir valmöguleikar í boði, hvort sem þú vilt hafa þau minni og einfaldari eða stærri og mikilfenglegri. Ljósaperan er oft sýnileg í hangandi loftljósum og því skiptir meira málið að vanda valið hvað varðar lögun og lit. Í BAUHAUS finnurðu gott úrval af ýmsum gerðum ljósapera.
Innfelld loftljós
Innfelld loftljós eru minni í ummáli og falla alveg inn í loftið svo það fer minna fyrir þeim. Innfelld ljós geta veitt rýminu betri og meiri birtu þar sem birtan virðist koma innan úr loftinu sjálfu. Gott er að hafa í huga að innfelld loftljós henta ekki öllum loftum og því er nauðsynlegt að hafa þykkt, staðsetningu og gerð loftsins á hreinu áður en fest eru kaup á slíkum ljósum.
Yfirborðslöguð loftljós
Yfirborðslöguð loftljós eru þau ljós sem liggja alveg upp að loftinu. Oft eru slík ljós í formi kúpuls, en nútímalegri gerðir eru margar þynnri og flatari. Yfirborðslöguð loftljós eru mjög vinsæl, enda henta þau í flest rými og taka lítið pláss.
Kastarar
Kastarar eru eitt eða fleiri ljós sem hægt er að snúa og færa til. Ljósaperan er fest á plötu í loftinu og hreyfist á öxli sem gerir þér kleift að breyta því hvert birtan beinist í rýminu.
Hvernig vel ég rétta loftljósið?
Áður en þú velur þér loftljós er gott að teikna upp rýmið sem ljósið fer í. Hvað er gert inni í rýminu? Hvar í rýminu eru hvaða athafnir framkvæmdar? Þetta eru spurningar sem er vert að hafa í huga til þess að fá sem mest út úr lýsingu rýmisins. Hér eru nokkrar tillögur um val á loftljósi:
- Stofa: Þegar það kemur að því að velja stofuljós, er gott að hugsa um mismunandi króka og kima stofunnar. Hangandi loftljós líta vel út fyrir ofan borðstofuborðið og veita huggulega birtu yfir kvöldmatnum. Í sjónvarpsholinu er þægilegra að hafa dimmanlegt ljós sem dreifir vel úr sér og stangast þá minna á við birtuna frá sjónvarpinu.
- Anddyri/gangur: Í anddyrinu eða á ganginum eru kastarar gott val, þar sem hægt er að beina þeim þannig að þeir nái að lýsa upp allt rýmið.
- Svefnherbergi: Í svefnherberginu hafa allar gerðir loftljósa sína kosti. Það fer bara eftir smekk hvers og eins hvað hentar best. Viltu tempraða birtu og afslappaðra andrúmsloft? Þá hentar hangandi loftljós vel. Viltu hressandi birtu sem nær vel yfir allt rýmið? Þá henta bæði yfirborðslöguð ljós og kastarar. Viltu eiga möguleika á því að skipta á milli þessara tveggja lýsinga? Veldu þér þá dimmanlegt loftljós og snjallperur þar sem þú getur breytt hitastigi birtunnar eftir eigin smekk.
Fáðu sem mest út úr lýsingu heimilisins
Vel skipulögð lýsing getur skipt sköpum í daglegu lífi okkar þar sem ljós gegnir mörgum hlutverkum og hefur mikil áhrif á okkur. Skoðaðu úrvalið af loftljósum eða kíktu við í BAUHAUS og fáðu aðstoð við valið.
FAQ:
Hvernig hengi ég upp loftljós?
- Þótt það kunni að virðast flókið að hengja upp loftljós getur framkvæmdin verið einföld. Lestu leiðbeiningarnar sem fylgja ljósinu vandlega og gakktu úr skugga um að allt sé til taks sem þarf til að festa það. Ef þú ert óviss um uppsetninguna geturðu alltaf heyrt í starfsfólki BAUHAUS og fengið aðstoð eða ráðið sérfræðing til að setja ljósin upp.
Hvernig loftljós ætti ég að velja?
- Hangandi loftljós passa við borðstofuborð í stofu en dimmanleg ljós virka best nálægt sjónvörpum. Notaðu kastara á göngum til að ná góðri birtu og veldu það ljós sem þér líst best á fyrir svefnherbergið. Prófaðu hangandi loftljós fyrir afslappað andrúmsloft og kastara eða yfirborðslöguð ljós fyrir hressandi birtu. Dimmanleg ljós og snjallperur veita þér svo sveigjanleika og endalausa möguleika.