12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 71 vörur
Page

Gólflampar

Við hjá BAUHAUS skiljum mikilvægi þess að velja rétta ljósabúnaðinn og perurnar til að skapa hlýja og aðlaðandi stemningu á heimilinu. Þess vegna bjóðum við upp á breitt úrval af ljósum í ýmsum stærðum og gerðum sem gera þér kleift að aðlaga lýsingu heimilisins að þínum þörfum. Meðal þessara ljósa eru gólflampar, sem geta sinnt bæði praktísku og fagurfræðilegu hlutverki á heimilinu. Ertu að leita þér að öðruvísi lýsingu en gólflömpum? Hér geturðu skoðað úrvalið okkar af alls kyns inniljósum, sama hvort þú vilt borðlampa, loftljós eða LED ljósborða.

Hvernig gólflampa ætti ég að fá mér?

Þegar þú ert að velja þér gólflampa þarftu fyrst að ákveða hvort þú ætlir að nota lampann til þess að vinna eða lesa, eða hvort þú ætlir að nota hann fyrir notalega lýsingu.

Ef þig vantar gólflampa inni í skrifstofurými mælum við með því að þú veljir lampa sem beinir ljósinu að mestu í eina átt, t.a.m. niður á við eða til hliðar. Þegar lampinn beinir birtunni á einn stað þarftu ekki eins sterka peru, og er birtustigið þá þægilegra til þess að sitja lengur við og vinna. Einnig er gott að skoða lampa með stillanlegum háls svo þú getir beint birtunni í mismunandi áttir ef þess þarf.

Ef þú ert að leita þér að gólflampa til þess að skapa notalega lýsingu í stofunni eða svefnherberginu er gott að skoða lampa sem dreifa ljósinu vel út frá sér og eru t.d. með skerm. Þessir lampar munu aldrei virka sem eina lýsingin í rými, en gefa frá sér mýkri og daufari birtu en loft- eða veggljós til dæmis, og eru því kjörinn kostur fyrir kósíkvöld eða rétt fyrir svefninn.

Hvernig ljósaperu ætti ég að kaupa?

Ljósaperum má skipta í þrjá aðalflokka: Klassískar perur, LED perur og snjallperur. Klassískar ljósaperur eru fínn kostur fyrir hefðbundið útlit og virkni á meðan LED perur eru orkusparandi, endingargóðar og koma í ýmsum litum og gerðum. Snjallperum er svo hægt að fjarstýra á ýmsa vegu. Annað sem þarf að hafa í huga við valið er litarhitastig peranna. Hlýhvítar perur henta vel til að skapa notalegt og vinalegt andrúmsloft á meðan kaldhvítar perur henta betur þar sem þú þarft bjartara ljós sem gefur þér þrótt. Hlýhvítar perur henta því vel í svefnherbergislampann en kaldhvítar perur í skrifborðslampann. Þú getur skoðað úrvalið okkar af ljósaperum hér.

FAQ:

Hvaða gólflampa ætti ég að velja?

  • Til eru margar mismunandi gerðir af gólflömpum. Gólflampar geta snúið upp í loft eða niður á gólf, verið með sveigjanlegan haus svo þú getir ráðið áttinni sem birtan fer í, verið með tvo eða fleiri hausa, verið með skerm sem mýkir birtuna eða beinir allri birtunni í eina átt, og svo margt fleira.

Hvar get ég sett gólflampa?

  • Þú getur sett gólflampa hvar sem þig lystir. Gólflampar geta gegnt bæði praktísku og fagurfræðilegu hlutverki. Til dæmis er gott að hafa góðan gólflampa inni í skrifstofurýminu sem gefur þér þrótt og góða birtu við vinnuna. Í svefnherberginu og stofunni getur svo verið kósí að hafa gólflampa sem gefur rýminu mjúka og notalega birtu.

Gólflampar

Sýna 71 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form