12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 93 vörur
Page

Gasgrill

Það er eitthvað svo ljúft við það að standa úti og elda matinn yfir opnum logum sem fæst ekki toppað, og þá sérstaklega á björtu og fallegu sumarkvöldi á Íslandi.

Er kominn tími á að endurnýja grillið? Eða áttu kannski ekki grill og ert að leita þér að fyrsta gripnum? Sama hvort það er, þá þarftu ekki að leita lengra en til okkar í BAUHAUS! Hvort sem þú ert vanur grillmeistari eða byrjandi þá finnurðu rétta grillið og tilheyrandi græjur hjá okkur. Hér að ofan finnurðu gott úrval af gasgrillum, en ef þú vilt kynna þér aðrar gerðir af grillum þá finnurðu þau einnig hér í netverslun BAUHAUS.

Af hverju ættirðu að velja gasgrill?

Gasgrill eru mjög vinsæl vegna þess að það er auðvelt að koma þeim í gang, þau hitna fljótt og þau bjóða upp á nákvæma hitastýringu. Grillin ganga fyrir própani eða jarðgasi og eru fullkomin fyrir þau sem vilja byrja að grilla hratt án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að kveikja í kolum eða viði. Gasgrill eru líka frábær fyrir þau sem vilja elda fjölbreyttan mat á grillinu þar sem auðvelt er að stilla þau að mismunandi hitastigi.

Þú getur auðveldlega grillað allt árið um kring með góðu gasgrilli. Skoðaðu úrvalið hér að ofan og komdu þér í grill-gírinn!

Þú valdir gasgrill, og hvað svo?

Þegar þú hefur valið rétta grillið fyrir er kominn tími til að huga að aukahlutunum. Ekkert grill er fullkomið án góðra verkfæra. Spaði, töng og grillbursti eru nauðsynleg fyrir alla grillara og þú gætir líka viljað íhuga að fjárfesta í kjöthitamæli til að tryggja að maturinn þinn sé alltaf fullkomlega eldaður. Aðdáendur grillaðs grænmetis verða svo að eiga góða grillkörfu. Í íslenskri veðráttu er einnig mikilvægt að huga vel að því að passa upp á grillið, og því er gott að eiga góða yfirbreiðslu. Þú finnur alla þessa aukahluti og margt fleira í verslun og netverslun BAUHAUS.

Hvort sem þú ert að halda grillveislu í bakgarðinum, fara í útilegu eða bara grilla fyrir fjölskylduna á laugardagskvöldi, þá finnurðu allt sem þú þarft hjá BAUHAUS.

FAQ

Eru gasgrill ódýrari í notkun en önnur grill?

  • Þótt gasgrill kosti sum jafn mikið eða meira aðrar tegundir grilla, þá er rekstrarkostnaður á þeim almennt lægri. Gasgrill ganga fyrir própani eða jarðgasi sem er vanalega ódýrara eldsneyti samanborið við rafmagn eða kol. Gasgrill eru því hagkvæmt val til lengri tíma litið.

Hvaða gasgrill ætti ég að fá mér?

  • Val á gasgrilli fer aðallega eftir þörfum, smekk og plássi. Fyrir þau sem halda oft stórar samkomur gæti stærra grill með mörgum brennurum og rúmgóðu eldunarsvæði verið tilvalið. Ef pláss eða hreyfanleiki eru af skornum skammti myndi fyrirferðarlítið eða flytjanlegt gasgrill henta betur. Hafðu einnig í huga grill með eiginleikum sem uppfylla aðrar þarfir, svo sem með hliðarbrennara eða grillbrennara.

Gasgrill

Sýna 93 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form