12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 154 vörur
Page

Garðhúsgögn

Þegar sumarið fer loksins að sýna sínar bestu hliðar er um að gera að nýta það og eyða sem mestum tíma úti í garði, á svölunum eða pallinum. Hjá BAUHAUS finnurðu allt sem þú þarft til að skapa notalega stemningu fyrir þig, fjölskyldu og vini á meðan þið njótið sumarsins, sama hvort þú sért að leita að húsgögnum fyrir svalirnar heima hjá þér eða pallinn upp í bústað.

Garðhúsgögn fyrir allt og alla

Íslendingar þekkja vel þá skyldurækni sem býr innra með þeim að fara út og njóta þegar veðrið er gott. Eins notalegt og það er að setjast á Austurvell í nokkra drykki með góðum vinum þegar veðrið leikur við okkur, þá er fátt betra en að hafa þægilegt útisvæði á heimilinu sem þú getur gert algjörlega að þínu.

Hjá BAUHAUS finnurðu garðhúsgögn fyrir hvaða smekk, stíl og rými sem er. Við eigum gott úrval af borðum, bekkjum, stólum, markísum, sólhlífum og mörgu öðru sem þig gæti vantað.
Ef plássið er takmarkað eða ef þú vilt hafa einfaldleikann í forgangi mælum við með því að velja gott sett af borði og sófa/stólum. Hugguleg setuaðstaða er undirstaða huggulegs útirýmis og í raun ætti rýmið að snúast um setuaðstöðuna. Ef þú vilt og hefur pláss til þess geturðu svo bætt við öðrum húsgögnum eins og markísum, sólbekkjum, sólhlífum og fleiru.

Þú finnur einnig aðrar vörur sem fullkomna útirýmið þitt hjá okkur í BAUHAUS. Við eigum gott úrval af mismunandi grillum svo þú getir boðið í grillveislur á pallinum, öll nauðsynleg garðverkfæri til þess að halda garðinum snyrtilegum og ýmsar gerðir blómapotta svo þú getir sett þinn svip á garðinn með fallegum plöntum og blómum.

Extra huggulegt útisvæði

Þótt góð garðhúsgögn, grill og fallegar skreytingar geri garðinn/pallinn/svalirnar strax að notalegra svæði, þá er alltaf hægt að fara skrefinu lengra. Áttu stóran garð sem þig dreymir um að gera að griðarstað fyrir þig og fjölskylduna? Í BAUHAUS finnurðu gott úrval af heitum pottum sem eru fullkomin viðbót við hvaða útisvæði sem er, hvort sem þú vilt slaka á eftir langan dag eða bjóða í gott pottapartí, ásamt úrvali af gróðurhúsum sem láta heimilið þitt standa út og gera þér kleift að leyfa þessum grænu fingrum að blómstra.

Skapaðu notalegt útisvæði með hjálp BAUHAUS og gefðu þér og þínum griðarstað til að slappa af og njóta lífsins.


FAQ

Hvaða tegundir af garðhúsgögnum ætti ég að velja?

  • Val á garðhúsgögnum fer eftir stærð garðsins, stíl þínum og þörfum. Viðarhúsgögn veita svæðinu klassískt útlit og góða endingu á meðan ál er með nútímalegra yfirbragð og er léttara í sér. Við mælum með því að byrja á að velja setuaðstöðuna og vinna þig svo út frá henni hvað varðar stíl og eiginleika.

Geta garðhúsgögn staðið úti allt árið?

  • Þó að flest garðhúsgögn séu hönnuð til notkunar utandyra fer langlífi þeirra eftir efniviðnum og staðbundnum veðurskilyrðum. Harðviður og ál er til dæmis langlífur efniviður, en hins vegar er gott að nota húsgagnahlífar eða geyma hluti innandyra á erfiðum vetrarmánuðum til að vernda þá og lengja líftíma þeirra.

Garðhúsgögn

Sýna 154 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form