12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 146 vörur
Page

Speglar

Speglar eru meira en bara eitthvað gler sem við notum til að laga hárið á okkur heldur eru þeir einnig stílhrein og hagnýt viðbót við hvaða rými sem er. Speglar geta látið minni rými virka stærri, bætt birtuna inni í herbergjum og verið fallegir skrautmunir - og svo getum við auðvitað speglað okkur í þeim þegar við lögum á okkur hárið, finna dress fyrir daginn eða erum að reyna að ná einhverju sem er fast í tönnunum.

Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af alls konar speglum sem henta hverjum smekk og innréttingastíl.

Hvernig spegil ætti ég að fá mér?

Speglar eru ekki aðeins hagnýtir heldur eru þeir einnig fjölhæfir skrautmunir sem passa áreynslulaust við hvers kyns innanhússhönnun. Þú þarft ekki að takmarka þig við einn spegil inni á baði og svo annan inni í svefnherbergi; það má bæta öll rými með spegli.

Borðspeglar

Borðspeglar eru hentugir inni á baði eða á snyrtiborðinu, og við mælum eindregið með borðspegli með LED ljósum sem gefur þér bjarta og náttúrulega lýsingu svo förðunin líti alltaf sem best út.

Veggspeglar

Veggspeglar henta fyrir hvaða rými sem er og eru til dæmis algengir inni á baðherbergjum. Baðherbergisspeglar eru alla jafna stílhreinni og einfaldari í hönnun, oft með innbyggðum LED ljósum sem bæta lýsinguna inni á baði, og hannaðir til þess að þola bleytuna, rakann og hitann sem fylgir baðherbergjum. Fyrir önnur rými er meira frelsi til þess að hleypa hugmyndafluginu af stað og velja á milli ýmissa stíla, stærða og lagana.

Gólf- og hurðaspeglar

Inni í svefn- eða fataherbergi er svo nauðsynlegt að hafa allavega einn stærri spegil sem sýnir þér dressið þitt frá toppi til táar. Hvort sem það er frístandandi gólfspegill, langur veggspegill eða hurðaspegill sem er festur á fataskápinn eða hurðina - þá geturðu ekki verið án hans. Gólf- og hurðaspeglar eru einnig frábær leið til þess að stækka rými og bæta birtuna inni í því. Er svefnherbergið frekar lítið? Settu langa spegla á einn vegginn eða framan á allar skápahurðirnar og herbergið mun virðast mun stærra og bjartara!

Þú finnur spegla fyrir þig og þína í BAUHAUS. Verslaðu í netversluninni og sæktu til okkar á Lambhagaveg 2-4 eða kíktu í heimsókn í búðina og fáðu fagmannlega ráðgjöf og aðstoð.

FAQ:

Hvar er hægt að hengja upp spegil með ljósum?

  • Þessir speglar bæta töfraljóma og virkni við hvaða rými sem er, en eru þó hentugastir inni á baðherbergi eða við snyrtiborðið, þar sem þeir tryggja góða lýsingu við alls kyns snyrtingu. Þú finnur gott úrval af speglum með lýsingu hjá okkur, ásamt

Hvernig á að setja upp spegil?

  • Það er auðveldara en þú heldur að setja upp spegil. Það eina sem þú þarft er borvél og/eða skrúfjárn og traustar festingar, og kannski hallamál. Þú finnur öll þau verkfæri sem þú þarft hjá okkur. Mældu tvisvar, boraðu einu sinni! Notaðu hallamálið til að tryggja að spegillinn þinn hangi beint og festu hann síðan með viðeigandi festingum.

Speglar

Sýna 146 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form