-
PRESSALITSalernisseta hæglokandi Pressalit D-form svört30.995 kr.
-
CamargueSalernisseta hæglokandi Sonara Universal Camargue svört6.195 kr.
-
Salernisseta Cedo Ifö Cera hvít14.995 kr.
-
Salernisseta hæglokandi Pressalit 3 684 hvít27.195 kr.
-
Salernisseta hæglokandi Violet13.495 kr.
-
CamargueSalernisseta hæglokandi Zoe Take13.395 kr.
-
DuravitSalernisseta hæglokandi Duravit Stark 3 take off16.995 kr.
-
VILLEROY & BOCHSalernisseta hæglokandi Subway Villeroy & Boch34.995 kr.
-
LopeBarnaseta fyrir salerni Bangsimon 23x29x5cm ljós blá3.595 kr.
Salernissetur
Salerni eru grundvallarþáttur hvers heimilis og staður sem við eyðum tíma á nokkrum sinnum á dag. Það er því mikilvægt að salernin séu hagnýt, snyrtileg og falli vel að stíl heimilisins þíns. En það sem er einnig mikilvægt er að salernissetan sé bæði þægileg og praktísk. Hjá BAUHAUS getur þú fundið mismunandi gerðir af salernissetum frá mismunandi vörumerkjum, svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun um hvaða tegund af salerni hentar þínu heimili best. Hér geturðu einnig skoðað úrvalið okkar af öðrum baðherbergisvörum.
Hvað eru hæglokandi salernissetur?
Hæglokandi salernissetur eru með dempurum sem tryggja að setja lokist hægt og rólega, og nánast hljóðlaust. Í dag eru langflest salerni komin með hæglokandi salernissetum. Við könnumst örugglega mörg við það að vera orðin vön hæglokandi setum og skella svo setunni óvart niður þegar við rekumst svo á salerni sem er ekki með hæglokandi setu. Við áttum okkur ekki á þægindunum við hæglokunina fyrr en við erum ekki með hana lengur. Hæglokandi salernissetur minnka bæði hávaðann við að loka klósettinu og minnka áreitið sem setan verður fyrir þegar henni er lokað. Ert þú ekki komin á hæglokunar-vagninn? Skoðaðu úrvalið hér að ofan og finndu þér nýja salernissetu í dag!
Útlitið skiptir líka máli
Þótt virkni og þægindi salernissetunnar skipti miklu máli, þá gerir útlit hennar það líka. Stíllinn, liturinn og lögunin á setunni getur breytt miklu fyrir andrúmsloftið inni á baðherberginu þínu. Hversu þykka brún viltu hafa á setunni? Viltu hvíta eða svarta setu? Hvernig viltu hafa hana í laginu? Þetta eru allt persónulegar ákvarðanir sem þú verður að taka til þess að vera sem ánægðust/astur með þitt val.
Þú finnur meira en bara salernisetur hjá BAUHAUS
Ertu í alls herjar framkvæmdum á baðherberginu hjá þér og þarft að endurnýja fleira en bara salernissetuna? Eða ertu jafnvel að setja upp glænýtt baðherbergi alveg frá grunni? Hjá BAUHAUS finnurðu allt sem þig gæti vantað. Við gott úrval af öllu frá praktískum hlutum eins og blöndunartæki og ýmsar innréttingar fyrir mismunandi þarfir, til fagurfræðilegri hluta eins og LED spegla og aukahluti á borð við handklæðasnaga og sápuskammtara.
Þú finnur gæðavörur í góðu úrvali fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS!
Er munur á mismunandi salernissetum?
- Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af mismunandi salernissetum. Við eigum setur í mismunandi litum og lögunum, stærðum og þykktum. Salernisseta er ekki bara salernisseta. Skoðaðu úrvalið og finndu þá réttu fyrir þig.
Hvernig vel ég réttu salernissetuna?
- Það fer bæði eftir þínum löngunum og salerninu sjálfu. Gakktu úr skugga um að salernissetan sem þú vilt passi við salernið þitt áður en þú festir kaup á henni. Þegar þú hefur gengið úr skugga um að setan passi getur þú hugsað betur út í liti, lögun, stærð og fleira.