12 mánaða skilaréttur.
Síur
Sýna 169 vörur
Page
  1. Camargue
    Speglaskápur matt blár 60x65 Stockholm
    94.295 kr.
  2. Camargue
    Speglaskápur rúnaður matt hvítur 50x65 Skärgård
    133.895 kr.
  3. Camargue
    Speglaskápur grár viður 60x65 Svanholm
    98.395 kr.
  4. Camargue
    Speglaskápur matt blár 90x65 Stockholm
    131.395 kr.
  5. LAUFEN
    Baðinnrétting Laufen Pro N 50x36cm vinstri
    67.795 kr.
  6. Camargue
    Speglaskápur matt hvítur 120x65 Svanholm
    180.795 kr.
  7. BATH DELUXE
    Handlaugarskápur Integrated grár 90cm Camden
    45.995 kr.
  8. Camargue
    Speglaskápur kantaður matt grár 100x70 Skärgård
    229.695 kr.
  9. Camargue
    Speglaskápur LED Stella Camargue 60x70x15,5mm grár
    45.595 kr.
  10. Camargue
    Speglaskápur 100x74cm Stella Camargue dökk eik
    87.595 kr.
  11. Camargue
    Speglaskápur svartur viður 100x65 Svanholm
    145.795 kr.
  12. Camargue
    Handlaugarskápur 89 cm Camargue Nord 2S koksgrár
    148.895 kr.
  13. Lanzet
    Speglaskápur Stella Lanzet 100cm viður
    98.395 kr.
  14. Camargue
    Speglaskápur koksgrár 100x65 Svanholm
    145.795 kr.
  15. Camargue
    Speglaskápur grár viður 100x65 Svanholm
    145.795 kr.
  16. Camargue
    Speglaskápur koksgrár 120x65 Svanholm
    180.795 kr.
  17. Camargue
    Speglaskápur koksgrár 80x65 Svanholm
    115.895 kr.
  18. Camargue
    Speglaskápur svartur viður 120x65 Svanholm
    180.795 kr.
  19. Camargue
    Speglaskápur grár viður 80x65 Svanholm
    115.895 kr.
  20. Camargue
    MINI NEÐRI SKÁPUR HÆGRI 39X59X50 cm HVÍTU
    46.395 kr.
  21. Camargue
    Speglaskápur 100x74cm Stella Camargue grár
    98.395 kr.
  22. LAUFEN
    Handlaugarskápur 60cm Laufen Base Hvítur háglans
    113.795 kr.
  23. Camargue
    Speglaskápur grár viður 120x65 Svanholm
    180.795 kr.
  24. Camargue
    FLEXILIGHT SPEGILSKÁPUR 80X60X13,6 HVÍTU
    136.495 kr.
  25. Camargue
    Speglaskápur rúnaður LED 100x73,7x15,7mm hvítur
    98.395 kr.
  26. Camargue
    Speglaskápur kantaður hvítur háglans 100x70 Skärgård
    229.695 kr.
  27. Camargue
    Speglaskápur kantaður hvítur háglans 120x70 Skärgård
    267.795 kr.
  28. Camargue
    Speglaskápur rúnaður hvítur háglans 120x70 Skärgård
    267.795 kr.
  29. Camargue
    Speglaskápur kantaður matt svartur 100x70 Skärgård
    229.695 kr.

Baðherbergið

Baðherbergið er eitt mikilvægasta herbergi heimilisins. Þar verða hversdagslegar venjur að helgisiðum sjálfsumönnunar þar sem þú getur skilið heiminn eftir, jafnvel bara í stutta stund, og einbeitt þér að þinni vellíðan. Dagarnir okkar hefjast og enda inni á baði. Þar búum við okkur undir áskoranir dagsins og slökum svo á þegar dagurinn er liðinn.

Baðherbergið ætti ekki aðeins að endurspegla þinn stíl heldur ætti það einnig að gefa frá sér velkomna og notalega hlýju sem stuðlar að slökun og ró.

Með réttu baðinnréttingunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt. Oftar en ekki eru það innréttingarnar sem fókusinn fer á inni á baðherbergjum, svo það er um að gera að velja rétt.

Á þessari síðu finnurðu gott úrval af innréttingum, speglum, blöndunartækjum og alls kyns baðherbergisaukahlutum af öllum stærðum og gerðum.

Skoðaðu úrvalið í BAUHAUS og byrjaðu að gera baðherbergið að rými sem þú elskar.

Settu saman draumabaðherbergið þitt

Dreymir þig um nýtt og notalegt baðherbergi? Fallegt baðherbergi er staður þar sem þú getur tekið þér verðskuldað frí frá annasömu hversdagslífi og endurnært þig. Baðherbergið er staður fyrir dekur, endurnæringu, afslöppun og allt þar á milli.

Fjárfesting í góðu baðherbergi gerir meira en að bæta vellíðan heimilisfólksins heldur eykur það líka verðmæti heimilisins verulega, óháð stærð þess. Þar af leiðandi er baðherbergið oft efst á lista yfir endurbætur á heimilinu.

Baðherbergisframkvæmdir eru oft ógnvænlegar og virðast vera óyfirstíganlegt verkefni, en við höldum því fram að það séu einnig þær breytingar sem munu hafa í för með sér mestu aukninguna á lífsgæðum.

Veldu réttu lausnirnar

Þegar kemur að endurbótum á baðherbergjum þarf að huga að mörgum þáttum. Er baðherbergið í litlu rými og þér finnst þú varla komast fyrir þar inni? Hjá BAUHAUS finnurðu ýmsar lausnir sem leyfa þér að nýta plássið sem best, t.d. með vegghengdum handklæðaofnum, stórum speglum sem láta rýmið virðast stærra og innréttingum með miklu og vel skipulögðu skápaplássi. Er mikil traffík inni á baðherberginu og erfitt að halda því skipulegu og snyrtilegu? Þú finnur alls kyns skipulagslausnir hjá okkur og gott úrval baðherbergisskápa sem henta þér og þínum.

Sérfræðingar BAUHAUS söfnuðu saman sínum bestu ráðum um allt sem tengist baðherbergjum sem geta hjálpað þér í þessu ferli:

  • Byrjaðu á því að ákveða heildarstíl og litaval: Hjá BAUHAUS finnurðu gott úrval af öllu sem þarf fyrir baðherbergið, hvort sem það eru blöndunartæki eða handklæðahankar. Því er mikilvægt að hafa skýra sýn á því hver þú vilt að lokaniðurstaðan verði strax í byrjun, svo þú vitir hverju þú ert að leitast eftir.
  • Virkni og þægindi skipta miklu máli: Gott er að velja lausnir sem eru hagnýtar og auðveldar í notkun. Innréttingin við handlaugina þarf því ekki bara að vera falleg – hún þarf líka að passa við þinn lífsstíl og þarfir.
  • Hugaðu vel að plássinu: Það er alltaf gott að velja lagnir, húsgögn og aðra aukahluti sem henta stærð og lögun herbergisins. Þú getur auðveldlega heillast af öllum mismunandi valmöguleikum, en það er mikilvægt að nýta rýmið skynsamlega, sérstaklega ef það er í smærra lagi.
  • Lýsing og loftræsting skipta sköpum: Góð lýsing og góð loftræsting eru nauðsynlegir eiginleikar notalegs baðherbergis. Lýsingin skiptir máli bæði fyrir virkni og vellíðan, á meðan loftræstingin er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir rakaskemmdir og halda loftinu góðu inni í rýminu.

Ef þú hefur þessar ráðleggingar í huga áður en þú byrjar að endurnýja eða uppfæra baðherbergið þitt, þá ertu á góðri leið! Mundu að ef þig vantar aðstoð þá er þér alltaf velkomið að heimsækja okkur í BAUHAUS þar sem þú færð fagmannleg ráð og frábæra aðstoð.

Allt fyrir baðherbergið þitt hjá BAUHAUS

Til að endurnýja baðherbergið þarf oft mikið af vörum, allt frá minnstu smáatriðum eins og nýrri klósettsetu til stærri hluta eins og nýs sturtuklefa. Hjá BAUHAUS höfum við allt sem þú þarft til að gera upp eða bæta baðherbergið þitt. Hjá okkur má til dæmis finna:

  • Handlaugar
  • Klósettsetur
  • Sturtusett
  • Handklæðaofna
  • Blöndunartæki
  • Spegla
  • Baðinnréttingar

Við eigum einnig gott úrval af öðrum vörum sem eru algjörlega ómissandi fyrir baðherbergið. Skoðaðu til dæmis flísarnar okkar sem mynda grunninn fyrir bæði gólf og veggi eða úrvalið af inniljósum sem henta bæði fyrir baðherbergi og önnur rými.

FAQ:

Getur þú gert baðherbergið upp sjálf/ur?

  • Já, þú getur alveg ráðist í endurnýjun baðherbergis sjálf/ur ef þér finnst slíkt verkefni spennandi og skemmtileg. Þetta krefst vandlegrar skipulagningar og auga fyrir stíl og hönnun. Svo skemmir ekki fyrir ef þú átt góða að sem nenna að hjálpa þér! BAUHAUS útvegar þér öll nauðsynleg efni og verkfæri fyrir framkvæmdirnar ásamt fagmannlegum ráðleggingum.

Hvað kostar að gera upp baðherbergi?

  • Kostnaðurinn við að gera upp baðherbergi er breytilegur eftir þáttum eins og stærð, gæðum efna og hönnunar. Hjá BAUHAUS bjóðum við upp á mikið úrval af efnivið, innréttingum og aukahlutum á mismunandi verði, svo öll ættu að geta sett saman sitt draumabaðherbergi.

Baðinnréttingar

Sýna 169 vörur
Page
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form