Speglaskápar
Við notum baðherbergið daglega, svo hvers vegna ættum við ekki að gera það eins huggulegt og við viljum? Með réttu baðinnréttingunum geturðu auðveldlega skapað notalega stemmingu í nákvæmlega þeim stíl sem þú vilt. Oftar en ekki eru það innréttingarnar sem fókusinn fer á inni á baðherbergjum, svo það er um að gera að velja rétt.
Hér að ofan finnurðu gott úrval af baðskápum með innbyggðum speglum. Ef þú ert að leita þér að annars konar baðinnréttingum eða vilt bara skoða úrvalið, þá finnurðu þær einnig hér.
Praktískir og flottir speglaskápar
Hvort sem þú ert að leita að því að gera upp allt baðherbergið þitt eða bæta við auka skáp, þá ertu á réttum stað. Við eigum gott úrval af speglaskápum fyrir baðherbergið í mismunandi hæðum, litum og gerðum - sama hvort þú sért að leita að litlum og einföldum skáp eða breiðum skáp með mörgum hurðum. Speglaskápar eru hentug innrétting þar sem þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með þeim. Speglaskápar henta mjög vel inni á minni baðherbergjum þar sem þeir spara pláss, þar sem þú þarft ekki auka veggpláss til þess að hengja upp spegil. Ef þú vilt frekar spegil sem er ekki fastur við skápinn finnurðu einnig gott úrval spegla hjá BAUHAUS.
Allsherjar framkvæmdir
Ertu að taka allt baðherbergið í gegn? Eða eru speglaskápar ekki það sem þig vantar akkúrat núna? Engar áhyggjur, þú finnur allt sem þarf til þess að gera baðherbergið þitt stílhreint og þægilegt í BAUHAUS:
- Blöndunartæki: Hvort sem þú ert að leitast eftir tvöföldum sturtuhaus, rigningarsturtu eða svörtu eða gylltu handlaugartæki - þú finnur það hjá okkur.
- Handklæðaofnar:Það er fátt betra þegar það er kaldara í veðri en að láta handklæðið þorna á hlýjum ofni. Handklæðaofnar eru einnig frábærir til þess að þerra sokka og nærföt!
- Salerni:Þetta segir sig svolítið sjálft. Þægilegt salerni er mikilvægur hluti af hverju baðherbergi. Hjá okkur finnurðu mismunandi gerði salerna, bæði vegghengd eða ekki, með eða án skolbrúnar, og í mismunandi stærðum.
- Aukahlutir:Snagar, sturtukörfur, salernisburstar og sápuskammtarar. Þú finnur allt sem þú þarft til að gera baðherbergið þitt að þínu eigin hjá BAUHAUS.
FAQ:
Hvaða stærð af speglaskáp ætti ég að fá mér?
- Þegar þú velur þér speglaskáp skaltu ganga úr skugga um að hann passi á vegginn þinn og að þú getir opnað skápahurðarnar auðveldlega. Einnig skaltu passa að skápurinn passi vel við stærðina á baðinnréttingunni fyrir neðan, og sé hvorki of breiður né og mjór.
Hversu hátt uppi ætti ég að hafa speglaskápinn?
- Þegar þú ert að ákvarða hæðina fyrir speglaskápinn þinn skaltu tryggja að spegillinn verði í þægilegri hæð fyrir þá sem munu nota hann en að hann sé ekki of nálægt handlauginni svo að það skvettist ekki mikið vatn á hann.