Rafmagns nuddpottur með 23 nuddstútum, potturinn er 202 cm í þvermál og 89 cm á hæð. Potturinn rúmar 6 manns. Þsð eru innbyggð LED ljós í pott...
Rafmagns nuddpottur með 23 nuddstútum, potturinn er 202 cm í þvermál og 89 cm á hæð. Potturinn rúmar 6 manns. Þsð eru innbyggð LED ljós í pottinum. Það er 3 kW vatnshitari með 2 hestafla vatnsdælu fyrir nuddstútana. Skelin er úr UV þolnum akrýl í hvítum lit.
Einangrun
DenForm heitu pottarnir eru vel einangraðir fyrir norðurslóði til að lágmarka rafmagnsnotkun við hitun. Skelin er einangruð með polyfroðu með hitaspeglandi filmu sem endurkastar hitanum aftur í pottinn. Einangrunin kemur í veg fyrir hitatap og hljóðeinangrar pottinn.
Vatnshreinsikerfi AquaGuard ®
Það er innbyggt vatnshreinsikerfi sem minkar þörfina á efnum til að halda pottinum hreinum. Fyrst fer vatnið í gegnum fíngerða síu sem fangar óhreinindi svo sem fitu, skordýr og annað sem flýtur á yfirborðinu. Næst er vatnið hitað og því er dælt í gegnum UV-hreinsikerfi sem drepur sýkla á öruggan máta. UV-hreinsun notar útfjólublátt ljós til að drepa örverur og koma í veg fyrir fjölgun þeirra, sem tryggir hreint vatnsumhverfi. Vatninu í pottinum er dælt í gegnum hreinsunarkerfið nokkrum sinnum á dag til að halda vatninu hreinu. Síurnar eru auðveldlega aðgengilegar til hreinsunar eða útskipta.
Fylgihlutir
1 x Einangrað lok 1 x Sía
Rafmagnstenging
3 x 16A öryggi, 400V 1 x 32A öryggi, 230V
Eiginleikar
Þvermál: 202 cm Hæð: 89 cm Þyngd(tómur): 280 kg Rúmmál: 800 L
Það er einnig hægt að fá allskyns aukahluti fyrir pottinn. Það er hægt að skoða aukahluti nánar með því að smella hér.
Vörunafn | Heitur pottur 6 manna DenForm UV Hawaii |
---|---|
Vörunúmer | 1499947 |
Þyngd (kg) | 390.000000 |
Strikamerki | 5706411029061 |
Nettóþyngd | 380.000 |
Vörumerki | DENFORM |
Vörutegund | Heitir pottar |
Sería | Hawaii |
Mál | 89 x 202 cm ( H x Ø ) |
Þvermál | 202 cm |
Hæð | 89 cm |