12 mánaða skilaréttur BAUHAUS Lesa nánar.
Síur
Sýna 19 vörur

Loftpressa

Loftpressa er gagnlegt verkfæri sem veitir þér aukna skilvirkni og kraft í ýmiss konar verkefni. Mörgum þykir loftpressan ómissandi verkfæri, sama hvort það sé til þess að pumpa í dekk, knýja loftknúin tæki og verkfæri eða spreyja málningu.

Hvernig virka loftpressur?

Tilgangur loftpressu er að breyta orku frá ákveðnum orkugjafa, eins og rafmótor eða bensínvél, í orku sem er geymd í þrýstilofti. Þetta næst með ákveðinni hringrás:

  • Inntak: Loft er dregið inn í aðalhólf loftpressunnar.
  • Þjöppun: Loftinu er þjappað saman af vélarstimpli sem myndar lofttæmi og dregur þannig loft inn í aðalhólfið.
  • Geymsla: Þjappaða loftið er geymt í geymslutanki þar til það er notað.
  • Losun: Þegar þú leysir frá loftinu dreifist það og breytist í hreyfiorku.

Þessi hringrás endurtekur sig svo og tryggir þannig stöðugt framboð af þrýstilofti á meðan þú þarft á því að halda.

Í hvað nota ég loftpressu?

Loftpressur eru fjölhæf verkefni sem má nota í ýmiss konar verkefni, bæði af fagfólki og áhugafólki. Þú getur notað loftpressu til að knýja verkfæri á borð við naglabyssur og málningarspreyjara, til að pumpa í dekk eða hreinsa verkfæri og önnur tæki, eða einfaldlega til þess að blása í blöðrur. Loftpressur koma í mismunandi stærðum og gerðum og því er ekkert mál fyrir þig að finna réttu loftpressuna fyrir þig og þín verkefni. Þú finnur úrval af málningarsprautum hér ásamt góðu úrvali af alls kyns verkfærum sem hægt að er knýja með loftpressu.

Hvernig loftpressu á ég að kaupa?

Þegar þú velur þér loftpressu skaltu fyrst hafa í hugsa hvers konar verkefni þú munt nota hana í. Sumar pressur eru stórar og öflugar og gagnast betur í stærri verkefni eins og að mála hús, á meðan minni pressur henta betur til þess að pumpa í dekk og blása upp blöðrur. Einnig þarftu að huga að því hversu stórt verkefnið er, upp á það hversu stóran geymslutank þú þarft. Stutt notkun, eins og til dæmis til að knýja naglabyssur, getur virkað vel með minni tank, en það á ekki við um öll verkefni. Loftpressur geta verið knúnar af annað hvort rafmagni eða gasi. Rafmagnspressur eru hreinni og hljóðlátari, og eru tilvaldar til notkunar innanhúss, á meðan gaspressur eru meðfærilegri og henta vel í utanhússverkefni þar sem rafmagn er ekki endilega aðgengilegt.

FAQ:

Hvernig virka loftpressur?

  • Loftpressur breyta orku frá einum orkugjafa yfir í mögulega orku í formi þjappaðs lofts. Loft er dregið inn í aðalhólf loftpressunnar þar sem því er þjappað saman. Loftið er svo geymt í geymslutanki þar til þú leysir frá honum til að nota loftið, og þá breytist það í hreyfiorku.

Hvernig loftpressu á ég að kaupa?

  • Það fer eftir því í hvaða verkefni þú ætlar að nota loftpressu. Sumar pressur eru stórar og öflugar og gagnast betur í stærri verkefni eins og að mála hús, á meðan minni pressur henta betur til þess að pumpa í dekk og blása upp blöðrur. Einnig þarftu að velja á milli rafmagnspressu eða gaspressu.

Loftpressur

Sýna 19 vörur
usp_block
 

Þjónustuver BAUHAUS

Opið 8-16 alla virka daga
 

Skil á vefpöntunum

Lesa nánar um skil
klaviyo_newsletter_form